Fagmennska

Öryggi

Persónuleg þjónusta

B. Sturluson er alhliða flutningafyrirtæki. Fyrirtækið er með vöruafgreiðslu í Stykkishólmi á Nesvegi 13. Áætlunarferðir á milli Stykkishólms og Reykjavíkur eru alla virka daga. B. Sturluson býður upp á allar gerðir flutninga, hvort sem það er flutningur á vörum, fersku sjávarfangi, gámum, búslóðum, vinnuvélum, byggingarefnum eða öðru. Við leggjum okkur fram um að bjóða faglega, örugga og persónulega þjónustu. B. Sturluson er í samstarfi við Eimskip-Flytjanda og Landflutninga-Samskip. Með því samstarfi hefur fyrirtækið góðan aðgang að dreifikerfi þeirra allt í kringum landið.

                    Nesvegur 13            340 Stykkishólmur           Sími: 577 1189           Netfang: bs@bsturluson.is